Ríkisbankinn Glitnir er kominn á fremsta hlunn með að gefa Mogganum fjóra milljarða. Tveir milljarðar af því eru verðlaust hlutafé og tveir milljarðar eru víkjandi lán. Þetta er ótrúlegt sukk með eignir skattborgaranna. Höfuðpaur málsins er Davíð Oddsson, sem reynir þessa dagana að safna saman eignafólki um Moggann. Hann er ríkur maður Davíð, getur veifað fjögurra milljarða króna eftirgjöf framan í verðandi hluthafa. Örlátur maður með annarra manna fé. Davíð er margt til lista lagt, en hann má ekki hafa með peninga að gera. Og allra sízt má hann vera seðlabankastjóri. Þar er hann gereyðingarvopn.