Misjöfn túlkun vandræðanna

Punktar

Hálf þjóðin gerir sér grein fyrir, að verri stjórn tekur við af þeirri vondu stjórn, sem nú situr. Þess vegna eykst fylgi Vinstri grænna og þess vegna nýtur stjórnin fylgis helmings kjósenda. Þrátt fyrir IceSave og bankarugl. Þessir kjósendur sjá fyrir sér, að hrunverjar komist til valda og stöðvi tilraunir til að koma lögum yfir gráðuga. Þá verði kúludrottningar verndaðar og strikað yfir aðild pólitíkusa að hruninu. Þriðjungur þjóðarinnar hefur hins vegar gullfiskaminni, heldur, að ríkisstjórnin hafi búið til IceSave og jafnvel hrunið í heild. Þeir kjósendur halda tryggð við hrunflokk Davíðs.