Minnisvarðar forsetans

Punktar

Forseti Íslands reisir sér ekki minnisvarða út af uppfinningu hitaveitu og þjóðarsátta. Í ellinni eignar Ólafur Ragnar Grímsson sér verk annarra. Hann getur logið bandarískar sjónvarpsstöðvar fullar af hitaveitusögum. En þær fara ekki í alfræðirit. Hér heima tekst honum ekki að stela heiðrinum af þjóðarsáttinni 1988-1990 af samningafólki vinnumarkaðarins. Við erum of góð í sagnfræði til þess. En afrek Ólafs er að peningasnobba embætti forsetans, gera nýríka gjaldgengari en pólitíkusa. Það er vel af sér vikið hjá manni, sem varð forseti á herðum almúgans. En seint verður hann talinn mikilmenni.