Minningarorð um skrímsli

Punktar

Minningargrein Jóns Baldurs Lorange um séra Georg í Landakotsskóla verður varðveitt í heiðurssæti í Safni íslenzkrar siðblindu. Það verður vonandi reist sem fyrst. Þar verða líka fleiri minningargreinar, svo sem Össurar Skarphéðinssonar um perrann á Ísafirði. En Jón Baldur segir um skrímslið í Landakoti, að það hafi sýnt “góðvild og fórnfýsi í þágu hans, sem öllu ræður. Vitnisburður um kærleika, óeigingirni og elsku til náungans.” Ódýrara má það ekki vera, þegar minnzt er eins af ofur-illvirkjum síðari tíma. Um suma höfunda íslenzkra minningarorða má segja, að oft sé betur heima setið.