Milliliðurinn er mikilvægur

Greinar

Enginn talar um vegi, flugvelli og hafnir sem óþarfa milliliði. Fáir sjá eftir því, að fjármunir eru notaðir til að afla bíla, flugvéla og skipa. Þetta eru allt saman viðurkennd samgöngutæki, aðferðir við að koma fólki og vörum sem skjótast frá einum stað til annars. Allir vita, að öflugar samgöngur, þótt þær kosti mikið fé, eru hornsteinar efnahagslegra framfara.

Saga efnahagslegra framfara er jafnframt saga þróunar samgangna. En að minnsta kosti í jafn miklum mæli er hún saga verzlunar. Verzlun er sú tegund samgangna, sem mest áhrif hefur haft, öldum og árþúsundum saman. Tilkoma verzlunar í fyrndinni gerbreytti þjóðfélagsháttum og lagði grundvöllinn að efnahagslegum framförum. Verzlunin gerði mönnum kleift að sérhæfa sig í atvinnuháttum og auka framleiðni sína. Sérhæfingin bætti vinnubrögðin og hefur alla tíð verið einn helzti hvati tækniþróunarinnar.

Milliliðurinn er mikilvægur, hvort sem hann er í verzlun eða öðrum samgöngum. Það er ekkert óþarft við milliliði, þótt þeir framleiði ekki vörur. Það er hreinn barnaskapur að skipta atvinnuvegum í undirstöðuatvinnuvegi, sem framleiði vörur og séu nytsamlegir, og aðra atvinnuvegi, sem ekki framleiði neitt og séu þess vegna að meira eða minna leyti óþarfir. En barnaskapur af þessu tagi er furðu útbreiddur hér á landi.

Jón Sigurðsson skildi nauðsyn og mikilvægi verzlunarinnar eins og margar ritgerðir hans sýna. Hann taldi frjálsa, innlenda verzlun vera eina helztu forsendu þess, að Íslendingar gætu myndað sjálfstætt ríki. Staðreyndin er nefnilega sú, að verzlun stuðlar atvinnuvega mest að eflingu efnahags hverrar þjóðar. Verzlunin er sjálfur hjartsláttur atvinnulífsins.

Verzlunarmenn eiga ekki að þurfa að láta bjóða sér að vera taldir annars flokks matvinnungar í þjóðarbúinu. Þeir eiga að geta borið höfuðið hátt af því að störf þeirra eru ein hin mikilvægustu í þjóðfélaginn. Þetta mega menn gjarna hugleiða nú um helgina, – á frídegi verzlunarmanna.

Menn ættu að hætta að tala um milliliðagróða eins og illa fengið fé. Menn ættu að hætta að nota kennslubækur í reikningi, þar sem verzlun er talin óþörf iðja. Reikningsdæmið um kaupmanninn, sem kaupir vöru á tíu krónur, selur hana aftur á ellefu krónur og er talinn græða eina krónu, er dæmi um frumstæðan hugsunarhátt í garð verzlunar. En þetta er börnunum kennt enn þann dag í dag.

Milliliðir kosta vitanlega peninga. Það þarf fé til rekstrar verzlunar eins og annarra samgangna. Þetta fé er ekki notað til að framleiða áþreifanlegar afurðir, fisk eða kjöt. En það er samt langt frá því, að þessi kostnaður fari í súginn. Það sjáum við bezt með því að bera saman þjóðir, sem leggja misjafna áherzlu á verzlun. Þær þjóðir, sem minnstu verja til verzlunar, eru fátækastar alla. En þær, sem leggja mesta vinnu og fyrirhöfn í verzlun, hafa mestu þjóðarframleiðsluna og mestan auðinn.

Í þjóðfélagi nútímans er ekki hægt að telja verzlunina annars flokks atvinnuveg, er sjúgi fé og fyrirhöfn frá svokölluðum undirstöðuatvinnuvegum. Það er ekki hægt að hugsa sér neinn atvinnuveg, sem væri réttar nefndur undirstöðuatvinnuvegur en einmitt verzlunin sjálf.

Jónas Kristjánsson

Vísir