Til að efla atvinnu lögmanna vilja færustu lögmenn stofna dýrt millidómstig milli héraðsdóma og Hæstaréttar. Millidómstigið spillir getu almennings til að gæta réttar síns. Fólk þarf að borga lögmönnum meira. Fyrst verða vitni leidd fyrir héraðsdóm og síðan fyrir millidóm, áður en kemur að Hæstarétti. Þar sem íslenzkir dómstólar traðka yfirleitt á almenningi, lenda menn áfram með sín mál úti í Strasbourg. Við þurfum ekki nýtt dómstig, það eykur bara kostnað og lengir leiðina að réttlæti. Ef hugmyndinni er ætlað að laga rugl og vitleysur úr héraðsdómi er einfaldara að skipta bara um héraðsdómara.
