Miðlungur og rusl

Punktar

Í ríkisstjórn, sem nær ekki máli, eru tveir venjulegir. Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal. Þau eru að vísu fulltrúar þrengstu sérhagsmuna, en koma sæmilega fyrir. Tveir ráðherrar hafa vaxið upp úr slæmri byrjun, Sigurður Ingi Jóhannsson og Gunnar Bragi Sveinsson. Set spurningu við Sigrúnu Magnúsdóttur, veit ekki enn hvernig hún mun spila á sín kort. Restin af ráðherrunum er afleit. Illugi er ráðherra Orku Energy, á kafi í spillingu. Kristján Þór Júlíusson er búinn að rústa heilsugeiranum og valda banvænu heilsutjóni. Ragnheiður Elín Árnadóttir og Eygló Harðardóttir eru svo botninn á tilverunni, ótrúlega skelfileg eintök.