Menntaðir drykkjurútar

Punktar

Bretar eiga við sama ölæðisvanda að stríða og við. Á báðum stöðum samþykkir samfélagið, að menn sleppi fram af sér taumunum. The Independent fjallaði um vandræðin fyrir nokkru. Drykkjurútar koma þar ekki bara úr stéttum verkamanna og iðnaðarmanna, heldur einnig menntamanna. Rakin eru dæmi um, að lögfræðingar láti eins og bestíur á pöllunum í fótboltaleikjum. “Ég er lögfræðingur og dómari”, gargaði einn, þegar hann var tekinn. Biskup var staðinn að innbroti í bíl, þar sem hann grýtti leikföngum út um gluggann. Í báðum löndum þarf að taka harðar á drykkjurútum og slípa lög um fyllerí.