Nýja árið verður tæplega jafn viðburðaríkt á innlendum vettvangi og liðið ár. Það var líka sérlega fjörugt ár, nánast samfelld röð örlagastunda.
Íslendingar mættu gleði og sorgum í ríkum mæli á gamla árinu. Af harmleikjum ársins er flestum flugslysið mikla í Sri Lanka enn í fersku minni. Og gleðifréttirnar af kjöri Friðriks Ólafssonar sem forseta Alþjóða skáksambandsins rísa líka hátt í endurminningunni.
Meira að segja menningin stóð með blóma. Sem dæmi má nefna, að Listahátíð tókst óvenju vel að þessu sinni. Ennfremur voru ungir og efnilegir höfundar fjölmennir á jólavertíð bókmenntanna.
Flestir hugsa þó til stjórnmálanna, þegar árið 1978 ber á góma. Þetta var mikið og afdrifaríkt kosningaár, sem leiddi til valda vinstri stjórnir, fyrst í Reykjavík og síðan í landinu.
Nýir siðir hafa fylgt nýjum herrum. Nú er ekki lengur stjórnað á lágum nótum í sátt og samlyndi helmingaskiptanna. Nú er allt á háa céi, þegar oddvitarnir bera nær daglega vandamál sín á markaðstorg almenningsálitsins.
Þessi stíll verður sennilega varanlegur. Almenningi líkar hann betur, enda hefur hann flutt valdið í landinu örlitið nær þjóðinni. Almenningur er meiri þáttakandi í stjórnmálunum.
Þegar horft er fram á nýja árið, er tilgangslítið að lesa áramótahugvekjur leiðtoganna. Mun skynsamlegra er að líta á hegðun fólksins í landinu og lesa úr henni spá um nánustu framtíð.
Fólk er svartsýnt um þessar mundir. Það eyðir ekki eins gegndarlaust og áður. Sumir eru jafnvel farnir að safna fé, sem áður þótti fráleitt í verðbólgunni. En þetta stafar af ótta við kreppu og atvinnuleysi.
Verðbólgan er ekki eingöngu neikvæð, því að henni fylgir oftast næg atvinna. Náist nú árangur í baráttunni gegn verðbólgu, er næstum öruggt, að það kemur niður á atvinnu manna. Þetta sjá margir fyrir.
Ekki bætir úr skák, að ríkisstjórnin hefur hafnað því að láta ríkissjóð rifa seglin. Samdrátturinn mun því koma með fullum þunga á atvinnuvegina. Enda er hljóðið þar í mönnum svartara en verið hefur um áratuga skeið.
Sum fyrirtæki eru að neyðast til að rifa soglin vegna skorts á verkefnum, til dæmis í byggingariðnaði. Önnur draga saman viljandi, af ótta við framtíðina. Atvinna manna verður ótrygg fyrir bragðið.
Svo eru það fyrirtækin, sem beinlínis ramba á barmi gjaldþrots. Þau eru óvenju mörg um þessar mundir, til dæmis í sjávarútvegi og fiskiðnaði. Þar á ofan hefur landbúnaðurinn sprengt greiðslugetu ríkissjóðs.
Ráðherrarnir halda sínu striki og þykjast ekki sjá þennan vanda. Sumir þingmenn stjórnarinnar deila þó svartsýninni með almenningi. Þeir munu vafalaust halda uppi andófi innan stjórnarflokkanna á næstu mánuðum.
Janúar verður þó rólegur, því að þingmenn eru örlátir á frí við sjálfa sig. Hringekjan fer svo af stað, þegar þing kemur saman í lok mánaðarins. Þá má aftur búast við samfelldum hamagangi á þingi, svo sem var á öndverðum þessum vetri.
Á þessum tímamótum er rétt að óska þjóðinni þess, að ríkisstjórnin ranki við sér og taki upp breytt vinnubrögð í varnarstríðinu fyrir framhaldi góðra lífskjara í landinu.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið