Meira ræktað en eyðist

Punktar

Góð frétt er, að við höfum loksins snúið vörn í sókn í landgræðslu. Eftir linnulausa árás þjóðarinnar á landið í þúsund ár er gróður núna loksins í sókn. Þar skipta tvö atriði mestu máli, stórum minni sauðfjárrækt og mikil landgræðsla. Landsvæði hafa verið friðuð og beitarálag annars staðar verið minnkað. Landgræðslan hefur girt víðáttumikil landsvæði og grætt upp hluta þeirra. Mikilvægt er að rjúfa vítahring vinds og beitar og það hefur víða tekizt. Markmiðið er enn fjarlægt; að koma landinu í það horf, sem það var við landnám. Þá höfum við loks skilað því skarti, sem forfeður okkar rændu.