Meindýrin og gæludýrin

Punktar

Ríkisstjórnin hefur ekki sýnt neinar aðgerðir til að lina þjáningar þeirra, sem sæta hærri vaxtabyrði. Ekki þeirra, sem gabbaðir voru til að taka lán í erlendri mynt. Ekki þeirra, sem skulda núna meira en sem nemur söluverði íbúðar sinnar. Þeir eru taldir meindýr á stjórnarheimilinu. Þar eru meiri áhyggjur af velferð annarra. Meðal plebbarnir eru meindýrin, eru bankarnir gæludýrin. Ríkisstjórnin hefur þegar áætlun um að taka hundruð milljarða króna að láni til að losa bankastjórabjána úr snöru, sem þeir fléttuðu sér sjálfir. Flottræfils-ríkisstjórn okkar hefur forgangsröð sína á hreinu.