Ef Steingrímur J. Sigfússon væri heiðarlegur pólitíkus, mundi hann segja okkur, hver á gömlu bankana. Hann gerir það ekki, heldur hefur það fyrir sig. Í krafti leyndó gefur hann yfirlýsingar um, hverjir eigi ekki nógu mikið í bönkunum til að valda skaða. Hann reynir að stýra umræðunni með því að sitja inni með upplýsingar, sem aðrir hafa ekki. Heiðarlegur maður mundi bara birta eigendalistann og eigendaprósentuna eins og heimtað er. Þá getur hver fyrir sig ákveðið, hvort hann telur vogunarsjóði eiga of mikinn hlut. Steingrímur nærist eins og heilög Jóhanna á að nota leyndina að vopni.
