McKenzie má nú fara

Greinar

Þá eru sönnunargögnin komin. Atburðir síðustu daga á Íslandsmiðum hafa verið kvikmyndaðir rækilega af sjó og úr lofti. Þessar kvikmyndir hafa nú verið sýndar víða um heim. Þær sanna umheiminum, svo ekki verður um villzt hver á sök á árekstrum brezkra herskipa og íslenzkra varðskipa á miðunum.

Brezku herskipin leika það að sigla fram með hlið íslenzkra varðskipa og beygja síðan þvert fyrir stefni þeirra. Það kemur því í hlut íslenzka varðskipsins að sigla á brezka herskipið, þótt allar vélar séu hafðar á fullu aftur á bak.

Það er því ákaflega óheppilegt, þegar íslenzkir embættismenn og ríkisfjölmiðlar segja brezku skipin hafa siglt á þau íslenzku. Réttara er að segja, að þau hafi siglt fyrir þau og valdið árekstrinum. Ónákvæmara orðalagið gefur Bretum tækifæri til að halda uppi orðhengilshætti um, hver hafi siglt á.

Meginmáli skiptir, að það eru Bretar, sem valda árekstrunum, með því að sigla snögglega í veg fyrir varðskipin. Af kvikmyndunum er ljóst að íslenzku varðskipin reyna að forðast árekstur með því að keyra vélarnar aftur á bak og víkja undan herskipunum.

Enginn vafi er á því, að kvikmyndirnar munu sannfæra sjódóminn um þetta, enda eru þær gerðar af fréttamönnum frá öðrum löndum í nærveru ótal vitna. Það eru því komnar upp þær kringumstæður, að íslenzka ríkisstjórnin getur lokað sendiráði Breta á Íslandi í samræmi við fyrri yfirlýsingu sína.

McKenzie sendiherra má taka pokann sinn. Hann hefur tekið þátt í lygasinfóníu brezkra stjórnvalda og brezka flotans þótt sannanirnar liggi á borðinu. Heiður hans er skertur á sama hátt og heiður annarra brezkra aðila, sem halda áfram að ljúga sig svarta frammi fyrir staðreyndunum.

Í þessu sambandi skiptir minnstu, hvort Ísland hafi hag eða óhag af slitum stjórnmálasambands við Bretland. Mergurinn málsins er sá, að við getum ekki endalaust látið traðka á sjálfsvirðingu okkar. Eins og Jóhann Hafstein sagði um daginn kann svo að fara, að við getum, heiðurs okkar vegna, ekki hugsað okkur að hafa samskipti við Breta, nema þeir bæti ráð sitt.

Allt framferði brezkra stjórnvalda í landhelgisdeilunni einkennist af takmarkalitlum ruddaskap. Þau setja upp engilhreinan sakleysissvip meðan þau vinna ofbeldisverk sín, allt samkvæmt kennisetningum Göbbelsar, sem greinilega,nýtur mikillar hylli hjá fyrrverandi andstæðingum sinum.

Við teljum það fyrir neðan virðingu okkar að standa í stjórnmálasambandi við slík stjórnvöld. Við höfum lengi vonað, að þau mundu bæta ráð sitt, en nú er þolinmæði okkar þrotin. Við erum ekki lengur til viðtals um hinar minnstu undanþágur Bretum til handa, hvorki innan 50 mílna landhelginnar né innan væntanlegrar 200 mílna landhelgi.

Það er því kominn rétti tíminn fyrir íslenzku ríkisstjórnina að fá samþykki utanríkismálanefndar alþingis fyrir slitum á stjórnmálasambandi við Breta. Framferði Breta hefur þjappað þjóðinni svo saman, að engin ríkisstjórn getur leyft sér minnstu undanlátssemi gagnvart Bretum.

Jónas Kristjánsson

Vísir