Matvælastofnun Taiwan klófesti bófa, sem fluttu inn iðnaðarsalt og seldu sem matarsalt. Nákvæmlega eins og Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Bófarnir voru dæmdir í allt að þrettán ára fangelsi. Hvers vegna? Af því að iðnaðarsalt felur í sér þungmálma, sem eru hættulegir heilsu fólks. Til dæmis skaða þeir ónæmiskerfið og getnaðarkerfið og valda krabbameini. Munurinn á Taiwan og Íslandi er, að Íslendingar eru skrípaþjóð, sem ekki getur stjórnað sér. Matvælastofnun lætur framleiðendur og seljendur svikinnar vöru ríða sér í röðum. Kadmíum í áburði var næstsíðasta dæmið um, að Matvælastofnun er hóra.