Bjartara er yfir þjóðinni en verið hefur um margra ára skeið. Lífið er ekki bara skuldir og vextir. Fólk er frjálsara en það var. Kunningjar, sem áður sögðu fátt af viti um þjóðfélagsmál, eru farnir að tala um samfélagið og söguna. Framsókn er komin varanlega út í yztu myrkur og Flokkurinn nýtur ekki lengur sömu skilyrðislausrar hlýðni. Tveggja áratuga pólitísk martröð er að baki. Davíð er orðinn bara kverúlant í Hádegismóum. Þjóðfundurinn í haust hafði góð áhrif og vonandi mun stjórnlagaþingið hafa það líka. Mitt í erfiðleikunum sjáum við upphaf að nýju Íslandi utan við gamla fjórflokkinn.