Einhver húmoristi hefur talið ungum bændum trú um, að ljóta Evrópusambandið muni taka börnin þeirra í þýzka herinn. Birta þeir auglýsingu um martröð sína í dagblöðum. Vitna þar í vonda þýðingu á texta utan samhengis eftir Angelu Merkel Þýzkalandskanzlara. Ég hef aldrei lesið orð um, að neinn í þessu vonda sambandi hyggist taka upp herskyldu á vegum þess. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður vinstri grænna, er flaggskip þessa martraðarfélags ungra bænda, en formaður er Helgi Haukur Hauksson. Með þessu upphafi þurfum við ekki að óttast, að umræðan um aðild að Evrópusambandinu verði málefnaleg.
