Erfitt er að ljúga og erfiðast er að síljúga. Sannorður þarf ekki að muna, hvað hann sagði síðast. Lygarinn þarf hins vegar alltaf að muna fyrri lygi til samræmis. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson getur ekki ákveðið próf sín. Í Mogga sagðist hann vanta tíma til að verja doktorsritgerð í skipulagsfræði við Oxford. Á vef Alþingis segist hann hafa LOKIÐ framhaldsnámi við Oxford í skipulagshagfræði. Á Linked-in segist hann VERA skipulagsfræðingur og arkitekt. Á Facebook segist hann hafa LOKIÐ framhaldsnámi í hagfræði og stjórnmálafræði. Minni Sigmundar á próf sín er í samræmi við pólitík hans.