Margrét Pála er snillingur

Punktar

Margrét Pála er alger snillingur. Hún staðfestir það, sem mig hefur lengi grunað. Börn eru alin upp í of miklu hrósi. Þeim er hrósað fyrir illa gerða hluti í stað þess að hvetja þau til að gera betur. Þetta gerist einkum í foreldrahúsum, en einnig í leikskólum. Margrét Pála telur, að með þessu sé verið að ala upp kynslóðir að fólki með útbelgt egó. Við þetta hef ég því að bæta, að þetta er einmitt orsök hrunsins. Alið var upp fullt af ungu fólki, sem er uppfullt af sjálfu sér og telur sér alla vegi færa. Unglingar voru ráðnir til að reka banka og stórfyrirtæki. Og settu allt lóðbeint á hausinn.