Magma er skrípó fyrirtæki, enda býr það í skúffu í Svíþjóð. Tekur Björgólf á íslenzkum fávitum. Þykist koma með dýrmætt erlent fjármagn inn í landið. Fær svo meiripartinn af kaupverðinu lánaðan hjá innlendum seljendum. Restina hyggst það fá hjá innlendum lífeyrissjóðum. Þetta er eins og Landsbankinn í gamla daga, allt tómt plat. Innlendir aðilar borga yfirtöku útlendinga á auðlindinni. Árni Sigfússon bæjarstjóri er í tómu rugli. Daginn eftir hyggst Magma svo leika sama leikinn með bjálfana í Hrunamannahreppi. Ríkisstjórnin hugsar svo hægt, að hún veit enn ekki sitt rjúkandi ráð. Nema helzt Svandís.
