Maðurinn með barnsandlitið

Punktar

Hreiðar Már Sigurðsson bankastjóri mætti eins og bláeygt barn í Kastljósinu, minnti á Bjarna Ármannsson. Sakleysislegt útlit sumra bankastjóra fleytti þeim lengra en þeir standa undir. Hreiðar segist vera blankur og ekki geta lagt peninga af mörkum. Samt hefur hann haldið dýrar veizlur undanfarið. Ég trúi blankheitunum, þegar ég tek á þeim. Þegar búið er að leita á Tortola og víðar. Hreiðar segist ekki þurfa að afsaka sig. Stýrði þó glæfrabanka, sem stundaði aðallega sjónhverfingar. Þrátt fyrir allt þetta telur maðurinn með barnsandlitið sig hæfan um að ráðleggja okkur um meðferð mála eftir hrunið.