Bradley Manning er maður ársins. Sætir illri meðferð í einangrun í einu stærsta hryðjuverkaríki heimsins, Bandaríkjunum. Sakaður um að hafa lekið skjölunum, sem fremstu dagblöð heimsins birta þessa dagana. Sé það rétt, er Bradley maðurinn, sem mest breytti heiminum árið 2010. Raunar hefur enginn breytt heiminum meira á þessari öld. Allt verður í heiminum hverfult við birtingu bandarísku leyniskjalanna. Við höfðum áður trúað, að valdamenn um heim allan væru að þjóna þjóðum sínum og mannkyni. Nú erum við smám saman að átta okkur á, að þeir eru flestir að mestu leyti bölvaðir drullusokkar.