Steingrímur J. Sigfússon er siðlaus. Hann rekur ekki Þorstein Þorsteinsson, formann Bankasýslunnar. Þorsteinn Þorsteinsson er siðlaus. Hann rekur ekki Elínu Jónsdóttur, forstjóra Bankasýslunnar. Elín Jónsdóttir er siðlaus. Hún rekur ekki Guðrúnu Johnsen, fulltrúa Bankasýslunnar í stjórn Arion. Guðrún Johnsen er siðlaus, lætur siðlausan Höskuld Ólafsson hafa fimm milljónir króna í mánaðarlaun. Þannig er röð siðleysingjanna. Því meira, sem hlutirnir breytast, því meira eru þeir eins. Núverandi stjórnkerfi er nákvæmlega eins spillt og úr sér gengið og stjórnkerfi Davíðs Oddssonar og Geirs Haarde.