Lokun er ekki nýtt fyrirbæri

Punktar

Engin hætta er á erlendir fjármagnsmarkaðir lokist fyrir Íslandi. Þeir eru þegar lokaðir. Hafa verið lokaðir í meira en ár. Það er ekkert nýtt. Mestan hluta síðustu aldar vildi erlent fjármagn ekki koma til Íslands. Bara það, sem ríkið gat krækt í handa Landsvirkjun og öðrum gæludýrum sínum. Með því að leggja fram ríkisábyrgð og bjóða orku á útsöluverði. Íslendingar lifðu góðu lífi án aðgangs að fjármagni. Tilgangslaust er að reyna að breyta því núna. Til dæmis með því að kría lánsfé út um allar trissur til að “efla gjaldeyrisvarasjóðinn”. Hvurs slags sjóður er það, sem er bara lánsfé.