Kristján Möller á ekki heima í ríkisstjórn nýrra tíma. Hann gæti verið í hvaða flokki sem er, fyrirgreiðslupólitíkus gamla tímans. Össur er hins vegar kameljón. Skiptir sér úr klappstýru frjálshyggjunnar yfir í gamaldags sósíalista á einum degi eins og ekkert sé. Jóhanna er náttúrlega heilög, þótt hún hafi verið í gömlu stjórninni. Aðeins þau þrjú voru þar ráðherrar. Að því leyti er stjórnin góð og málefnin eins og við er að búast. Tekið verður áfram mark á Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og Evrópuaðild frestað fram yfir kosningar. Ég held, að þessi stjórn verði hátíð miðað við þá vanhæfu.