Lokað og læst

Punktar

Upplýsingar úr skattskrám liggja frammi í of skamman tíma og ekki í nógu handhægu ástandi. Þær eiga að vera á vefnum í töfluformi allt árið um kring, svo fólk geti unnið með upplýsingarnar. Fjármál eru engin einkamál. Allra sízt í þjóðfélagi, þar sem þeir stela öllu steini léttara, sem betur mega sín. Sömuleiðis eiga fasteignaskrár og bifreiðaskrár að vera á vefnum, opnar öllum almenningi. Einnig skuldaskrár og afskriftaskrár, því að við þurfum að fylgjast með aðgangi forréttindafólks að fjármagni. Það er einn helzti mínus þessarar ríkisstjórnar að hafa ekkert gert til að lofta út í þjóðfélaginu.