Lögregluofsóknir í morgun

Punktar

Að undirlagi Útlendingastofnunar fóru í morgun fram lögregluofsóknir gegn hælisleitendum. 58 löggumenn frá þremur embættum ofsóttu útlendingana. Lítið kom upp úr krafsinu. Yfirlýstur tilgangur var að finna falsaða passa. En ekki er enn vitað um, að neinn slíkur hafi náðst. Hins vegar fundust peningar, samtals 1,6 milljónir króna. Þeir voru ekki falsaðir. Löggan tók féð af fólkinu. Hingað til hefur ekki verið ólöglegt að hafa peninga í fórum sínum. En þegar fasista-stofnanir leggja saman, geta þær búið til sértæk lög. Þær vinna ekki vinnuna sína, þegar 58 löggur stunda ofsóknir.