Lögreglan gerð óstarfhæf

Punktar

Björn Bjarnason stríðsráðherra gerir lögregluna óstarfhæfa til daglegra verka. Hún getur til dæmis ekki sinnt ofbeldi og handrukkun. Þetta stafar af, að Björn hirðir hvern sjáanlegan eyri í gæluverkefni. Þau felast í að koma upp herlögreglu og leyniþjónustu á vegum gæludýrsins. Björn er enn að skipta um bleyjur á Haraldi Johannessen herforingja. Sá síðari hefur aðeins eitt gæluverkefni, að þenja út völd sín á kostnað annarra lögreglustjóra. Síðasta fórnardýrið er lögreglustjórinn suður með sjó. Í stað hans kemur lögreglustýra úr handraða Haraldar. Getur Geir ekki losað okkur við Björn?