Logið að útlendingum

Punktar

Ólafur Ragnar Grímsson lýgur því að útlendingum, að Íslendingar hafi leyft bönkunum að falla. Þeir séu svona miklu sniðugri en Írar. Staðreyndin er, að Geir og Davíð snerust eins og skopparakringlur við að reyna að hindra fall bankanna. Tóku á skattgreiðendur hundruð milljarða í vonlausu varnarstríði. Bankarnir voru ekki látnir falla, þeir féllu af sjálfsdáðum. Lygin í Ólafi minnir á aðra lygi hans um langa hefð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum hér á landi. Sú hefð var alls engin, þegar orð hans féllu. Útrásar-klappstýran Ólafur Ragnar er enn til vandræða með snákaolíu-sölumennsku úti í heimi.