Löggurnar styðja þjófana

Punktar

Lögreglan í Reykjavík neitar að taka við kærum á hendur fjárglæfrastofnunum fyrir stuld. Lögreglumenn segja, að ríkislögreglustjórinn banni það. Þetta sýnir enn og aftur, að löggan styður glæpi, ef réttir aðilar fremja þá. Þannig getur Lýsing framkvæmt vörzlusviptingu með aðstoð lögreglunnar, þótt pappírar sýni, að hún sé ólögmæt. Lýsing starfar í skjóli þess, að lög ná ekki til fyrirtækisins. Það tekur ekki einu sinni mark á hæstaréttardómum. Ef lög næðu til fyrirtækisins, yrði það gjaldþrota. Þess vegna starfar lögregla ríkismafíunnar undir einkunnarorðunum: Löggurnar styðja þjófana.