Löggur fjarlægjast fólk

Punktar

Því meira sem löggur vopnast, þeim mun meira fjarlægjast þær fólkið. Löggur eru komnar með á heilann, að hættulegt sé að vera innan um fólk. Búnar að fá piparúða til að hrekja fólk burt og kalla hann varnarúða. Á landsþingi sínu samþykktu löggurnar að lýsa yfir stríði gegn fólkinu í landinu. Þær heimtuðu rafbyssur. Þegar í stað. Strax. Landsþingið, sem nú stendur í Munaðarnesi, vísar til, að almenningur sé “daglega” að ofsækja löggur. Við minnumst þess, þegar fimm löggur lágu í stundarfjórðung ofan á konu. Þær handtóku mann, sem spurðist fyrir um þörfina á því. Löggan má passa sig.