Löggiltir fáráðlingar

Punktar

Ég opna svo ekki fyrir sjónvarp, að ég sjái ekki talsmenn greiningardeilda bankanna geipa um efnahagsástandið. Samt höfum við reynsluna. Þeir hafa ekki hundsvit á peningum og efnahag. Reynslan sýnir það. Ríkasti maður, sem ég þekki, gerir alltaf öfugt við það, sem talsmenn greiningardeilda mæla með. Spámenn stofnana, sem hafa sett þjóðarbúskapinn á hvolf, eru auðvitað ekki frambærilegir álitsgjafar í fjölmiðlum. Samt hefur þeim tekist að þeyta ryki í augu sjónvarpsmanna. Líklega af því að þeir síðastnefndu eiga sjálfir lítið af pappírum. Þeir trúa bönkum, sem hafa sannað vanhæfni sína.