Sigurður Líndal prófessor telur orðið Þjóðareign skorta lögfræðimerkingu. Verst fyrir lögfræðina sjálfa. Ef lagatæknar, sem Sigurður hefur útskrifað, skilja þetta ekki, eru þeir úti að aka. Fyrir mér er þjóðareign kristaltært hugtak. Hún felst í, að þjóðin á auðlindina eins og hvern annan bíl eða hvert annað hús. Hún getur notað auðlindina sjálf, leigt hana út og haft af henni tekjur og arð. Þjóðareign felur líka í sér, að enginn annar getur átt hana um leið. Getur til dæmis ekki átt eilífan eða langvinnan nýtingarrétt á henni. Þjóðin ræður, umboðsmaður hennar er ríkið og stjórnarskráin er tækið.