Lofar himnaríki

Punktar

Lízt vel á FYLKISFLOKKINN, sjálfskipaðan leiðtoga lífs okkar og stefnuskrána, sem hann samdi einn og óstuddur. Í stuttu máli snýst flokkurinn um að gabba Norðmenn til að hirða hræið af rændu og rupluðu Íslandi. Loforðalistinn snýst að mestu um lífsins gæði, sem Norðmenn hafa umfram Íslendinga. Flokkurinn vill losa okkur undan þrældómi hinna fjögurra flokka íslenzkra þjóðníðinga. Flytja ákvarðanir um framtíðina frá heiladauðum kjósendum Íslands yfir til nokkurn veginn normal Norðmanna. Fáum strax alvörumynt, sem annars tæki mörg ár í Evrópusambandinu. Noregur er ekki fullkominn fremur en Evrópa. En nálægt himnaríki eigi að síður.