Samkomulag ríkisstjórnarinnar um Magma er loðið eins og kölski sjálfur. Þar er orðalag án innihalds: “Að vinda ofan af einkavæðingu”, “tryggja eftir megni”, “grundvallarstefna”. Samkomulagið er orðað til að svíkja. Í stað þjóðareignar er þvoglað um “meirihlutaeign” og “forræði”. Þetta er sama liðið og sveik loforðið um fyrningu aflaheimilda. Markmið samkomulagsins er að friða uppreisnarfólk Vinstri grænna, er hrósar núna hálfum sigri, sem enginn er. Ég sé ekki lengur nokkurn mun á þessari ríkisstjórn og þeim ríkisstjórnum, sem hrunverjar skipuðu. Þetta er róttæk hægri hrunstjórn.
