Fundur Ólafs F. Magnússonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í ráðhúsinu í gær hafði staðið tvo tíma. Þá sagði Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri blaðamönnum, að rætt yrði við fjölmiðla við lok fundar. Það var lygi. Undir lok fundarins sagði Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra, við blaðamenn, að fundi væri lokið og allir væru farnir. Það var lygi. Frá þessu segir í DV í dag. Einkennilegt er, að fleiri fjölmiðlar segi ekki frá þessu. Mér finnst alvarlegt, að tveir embættismenn borgarinnar skuli ljúga blákalt að blaðamönnum. Hafa Jakob og Regína alls enga sómatilfinningu?
