Kemst Sjálfstæðisflokkurinn upp með að hafa í kreppunni áhyggjur af öllum öðrum en kjósendum? Áhyggjur af bönkunum og útrásinni, en ekki af fólkinu, sem nú borgar brúsann af vitleysunni? Kennst Samfylkingin upp með að svíkja kerfisbundið öll mikilvægustu kosningaloforðin undir slagorðinu Fagra Ísland? Ráðherrar beggja flokka eru úr sambandi við fólk, þeir hoppa bara kringum auðmenn. Sennilega láta kjósendur þetta yfir sig ganga. Þeir hafa sætt sig við, að ráðamenn stjórnmálaflokka svíki öll loforð og mylji undir gæludýrin sín. Engir kjósendur eru eins lítilþægir og hinir íslenzku.
