Núna löngu eftir hrun eru fjármál við það sama og fyrir hrun. Sérstakur saksóknari er týndur. Aðeins Baldur Guðlaugsson hefur verið dreginn fyrir rétt. Bankarnir eru undir stjórn bófa með fimm milljónir króna á mánuði. Bankaleynd hefur ekki verið afnumin og engin siðvæðing orðið í bönkunum. Þar eru fyrri bófar á hverjum pósti. Bankasýsla ríkisins er skipuð fyrri bófum úr gömlu bönkunum. Fjármálaráðherra grýtir milljörðum og tugum milljarða í aðrar fjármálastofnanir, sparisjóði og tryggingafélög. Þetta getur ekki verið raunveruleikinn. Við erum stödd í Réttarhöldunum eftir Franz Kafka.