Lífsrými, glerperlur, spritt

Punktar

Tek evrópska stjórnsýslu fram yfir íslenzka. Evrópskt regluverk fram yfir íslenzkt. Evrópsk lög fram yfir íslenzk. Belgíska skóla fram yfir íslenzka. Franskt heilbrigðiskerfi fram yfir íslenzkt. Þýzka “Soziale Marktwirtschaft” fram yfir íslenzkt hagkerfi. Sænskt gegnsæi fram yfir íslenzka leynd. Danskt lýðræði fram yfr íslenzkt flokks-, kunningja- og fjölskylduræði. Hvar sem ég lít, er langtum betra í Vestur-Evrópu en hér. Þar á ofan halar Evrópa þjóðir Miðjarðarhafsins upp úr sárustu fátækt. Og er að byrja að gera það sama við Austur-Evrópu. Samt bulla þjóðrembingar um lífsrými, glerperlur og spritt. Svei Ögmundi.