Lífsgæði einkavæðingar

Punktar

Sorphirða er einkavædd á Seltjarnarnesi. Starfsmenn ganga illa um tunnur, lokin brotna, eru ekki endurnýjuð. Tunnur eru settar út á götu að morgni, margar opnar. Í rokinu velta þær og sorpið þeytist um götur. Restin er svo tæmd síðdegis. Málning zebra-brauta er líka einkavædd. Þegar brjóta þarf upp gamlan lit, er ruslið látið liggja í hrúgu. Og er þar enn. Þessi er munur á lífsgæðum opinberrar og einkaþjónustu. Ég veit ekki, hvort útboðið var gallað, hvort svonefndur eftirlitsiðnaður stjórnvalda er ekki nógu harður, hvort verktakinn sér bara gróðann. En lífsgæðin minnka örugglega.