Lífeyrissjóðsmenn saksóttir

Punktar

Alþingi verður að setja í gang ferli, sem leiðir til rannsóknar saksóknara á rekstri lífeyrissjóða. Raunar líka á rekstri Íbúðalánasjóðs. Allir þessir aðilar viku frá lögboðnum aðferðum við ávöxtun peninga. Það hlýtur að vera refsiverð háttsemi samkvæmt tungutaki lagatækna. Stjórnendur og stjórnarmenn lífeyrissjóða og Íbúðalánasjóðs mega ekki sleppa við dómsmál vegna meðferðar sinnar á fjármunum. Hundruð milljarða brunnu á linnulausu eyðslufylleríi þessara aðila með gullætum bankanna. Tugþúsundir Íslendinga verða fyrir stórtjóni af þeirra völdum og Íbúðalánasjóður rambar á barmi gjaldþrots.