Leyniskjalið opinberað

Greinar

Utanríkisráðuneytið hefur nú svipt hulunni af varnarsamkomulagi Íslands og Bandaríkjanna, er gert var 22.október, og af bókuninni, sem fylgir samkomulaginu.

Birting þessara skjala var löngu orðin tímabær. Margir hafa orðið til þess að kvarta vegna tafarinnar og aðrir hafa reynt að koma á kreik dylgjum um efni bókunarinnar. Nú geta hins vegar allir séð þessi atriði svart á hvítu. Ríkisstjórnin hefur gert hreint fyrir sínum dyrum.

Birtingin leiðir fátt í ljós, sem ekki hefur áður verið upplýst í fréttum. Þar koma þó fram ítarlegri upplýsingar en áður um fyrirhugaða skiptingu Keflavíkurflugvallar í herstöð og alþjóðlega flughöfn og um skiptingu kostnaðar við þær aðgerðir.

Íslendingar munu sjálfir kosta að mestu byggingu flugstöðvarinnar, en Bandaríkjamenn taka þátt í kostnaðinum eftir því sem fjárveitingar heimila og.varnarliðsrekstur krefst. Bandaríkjamenn munu svo kosta sjálfa skiptingu flugvallarsvæðisins, þar á meðal lagningu aðkeyrslubrauta flugvéla, byggingu flugvélastæða, lagningu vega og endurnýjun flutningakerfis flugvélaeldsneytis.

Athyglisvert er, að samkvæmt samningnum taka Bandaríkjamenn að sér að byggja upp á tíu árum mjög fullkominn öryggisbúnað, er fullnægi ýtrustu kröfum Alþjóða flugmálastofnunarinnar. Slíkur búnaður hefur vissulega mikið hernaðarlegt gildi, en er einnig veigamikill þáttur í þróun Keflavíkurflugvallar sem alþjóðlegrar flughafnar.

Þá eru í bókuninni athyglisverð ákvæði um, að varnarliðið kaupi heitt vatn frá væntanlegri hitaveitu Suðurnesja, og ætti það að vera báðum aðilum í hag. Ennfremur er í bókuninni gert ráð fyrir eflingu samstarfs varnarliðins annars vegar og landhelgisgæzlunnar, almannavarna og flugmálastjórnarinnar hins vegar.

Áður hefur rækilega verið skýrt frá því, að skjöl þessi gera ráð fyrir, að varnarliðsmönnum fækki á óákveðnum tíma um 420 menn og að Íslendingar verði þjálfaðir til ýmissa starfa á vegum varnarliðsins. Einnig að varnarliðið hyggst byggja 468 íbúðir fyrir menn sína, svo að engir þeirra þurfi í framtíðinni að búa utan herstöðvarinnar.

Enginn vafi er á, að mikil bót er að þeirri endurskoðun, sem hér hefur verið lýst. Varnir Íslands og Atlantshafsbandalagsins eru tryggðar á sama hátt og áður, en stefnt að haganlegra fyrirkomulagi starfseminnar. Minni hætta er á árekstrum, þegar varnarliðsmenn búa ekki utan herstöðvarinnar. Mikilvægast er þó, að samkomulagið ýtir mjög á eftir því, að komið verði upp myndarlegri alþjóðlegri flughöfn á Keflavíkurflugvelli, algerlega aðskilinni frá starfsemi varnarliðsins.

Samkomulagið og bókunin hafa nú verið kynnt alþjóð og má fastlega gera ráð fyrir, að allur þorri manna telji, að farsæl lausn hafi fundizt á endurskoðun varnarsamningsins.

Jónas Kristjánsson

Vísir