Skrifstofustjóri og forseti Hæstaréttar neita að upplýsa undarlega fjarvist dómara. Hvers vegna allir tólf dómarar réttarins höfðu gildar ástæður til að mæta ekki við setningu Alþingis. Sérkennilegt er, að hver einasti dómari forfallist við hefðbundna skrautsýningu þingræðisins. Auðvitað er ljóst, að þeir vildu alls ekki mæta. Kannski af ótta við að fá á sig egg. Kannski af fyrirlitningu á þessu sérstaka Alþingi. Kannski af fyrirlitningu á þingræði sem slíku. Mikilvægt er að þjóðin fái skýringu á hegðun dómaranna. Nógu mörgu er haldið leyndu, þótt áður virðulegur Hæstiréttur sé ekki í skrípó.