Leynd verði aflétt af IceSave

Punktar

Einboðið er, að leyniupplýsingar um IceSave, sem fjárlaganefnd fékk, verði gerðar sýnilegar kjósendum. Ófært er, að fólk taki ákvörðun á grunni verri heimilda en fjárlaganefndin. Formaður nefndarinnar þarf nú að gera gangskör að því að aflétta þessu leyndói. Eins og oftar kemur í ljós, að öll leynd er til bölvunar. Lög um leynd eru svo gamaldags, að Alþingi þarf væntanlega að setja sérstök lög um þessa afléttingu. En óboðlegt er að fara með málið í þjóðaratkvæði áður en þessum þröskuldi er rutt úr vegi. Illa upplýst þjóð hefur enga möguleika á að taka rétta ákvörðun. Er bara ófróður æsingamúgur.