Leyfislaus ferðaþjónusta

Punktar

Sérstök könnun hefur leitt í ljós, að stórir þættir íslenzkrar ferðaþjónustu hafa ekki starfsleyfi. Hundrað fyrirtæki starfa án leyfis. Í Reykjavík eru 600 hótelherbergi án leyfis. Fjórar bílaleigur eru leyfislausar. Það er eins og Davíð Oddsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson séu enn við völd. Hér ríkir enn eftirlitsleysi af hálfu eftirlitsaðila. Líka í fjármálaeftirliti og umhverfiseftirliti. Fyrir hrun var þetta opinber stefna. Bófar áttu sjálfir að hafa eftirlit með sér. Eftirlitslaus einkavæðing bankanna var kórónan á vitleysunni. Núverandi stjórnvöld virðast ekki fatta ástandið.