Létu þjóðhreinsa Serba

Punktar

Ante Gotovin, þekktur stríðsglæpamaður, kom fyrir dómstólinn í Haag í gær. Hann var hershöfðingi og þjóðhreinsari í Krajina í Króatíu árið 1995. Lét útrýma Serbum með aftökum og brottrekstri. New York Times segir í dag hann hafa gert það í samráði við bandaríska herinn. Blaðið segir fyrrverandi og þáverandi yfirmenn í bandaríska hernum hafa skipulagt aðgerðirnar og notað sjálfstýrðar flugvélar til að njósna um Serba. Ante Gotovin er varinn af herfylki lögmanna, þar á meðal Greg Kehoe, sem sótti Saddam Hussein til saka í Írak af hálfu Bandaríkjanna. Gotovin er einn af “okkar tíkarsonum”.