Lénharður tekur völdin

Greinar

Hvað gerir Torfi í Klofa?

Ríkisstjórn Íslands er löglega og lýðræðislega valin. Þingmeirihluti hennar er óvenjulega mikill, meiri en þekkzt hefur áratugum saman hér á landi. Samkvæmt stjórnarskrá, landslögum og hefð má hún stöðva verkföll, ef afleiðingar þeirra eru að verða alvarlegar.

Bæði vinstri og hægri ríkisstjórnir hafa beitt þessu valdi á örlagastundu. Margir hafa hugsað ríkisstjórnum þegjandi þörfina og ákveðið að stuðla að falli þeirra í næstu kosningum. En menn hafa hlýtt lögunum. þangað til í gær.

Líki Birni Jónssyni, Eðvarð Sigurðssyni og fleirum ekki bráðabirgðalög gærdagsins, geta þeir reynt að fá nýjan þingmeirihluta í næstu kosningum og fella þar með ríkisstjórnina. Það er hin lýðræðislega aðferð til að losna við ríkisstjórnir, sem menn eru óánægðir með.

Í stað þess hafa Björn, Eðvarð og félagar kosið að naga rætur lýðræðiskerfisins. Þeir hafa hvatt og knúið almenna félagsmenn verkalýðsfélaganna til að brjóta landslög. Eru þeir menn til að standa undir slíkri ábyrgð?

Svarið er einfalt. Enginn getur með valdi hrifsað stjórnina úr höndum löglega og lýðræðislega valinnar ríkisstjórnar. Í því felast hrein og bein landráð. Engir geta axlað slíka byrði, þótt þeir telji sig mikla menn.

Síðdegis í gær var lýðræði lagt niður um stundarsakir hér á landi. Í staðinn var tekið upp alræði verkalýðsforingjanna. Í krafti samtaka sinna hafa þeir greitt lýðræðiskerfinu þungt högg og gert það óvirkt að sinni.

Engin leið er að meta núna, hvort sárið grær, eða lýðræðiskerfinu blæðir út. Þjóðin sem heild verður að spyrja sjálfa sig, hvort ofbeldismennirnir eigi að komast upp með þetta. Hún er í sama vanda og Torfi í Klofa var á dögum Lénharðs.

Ellefuhundruð ár þessarar þjóðar verða til lítils, ef fámennum hópi ofbeldismanna tekst nú að hrifsa til sín völdin í landinu með því að brjóta stjórnarskrá, landslög og hefðir þjóðarinnar.

Í þessu sambandi skiptir ekki máli, hvaða álit menn hafa á ríkisstjórninni. Menn geta farið eftir því áliti í næstu kosningum. Í dag er hins vegar um sjálft lýðræðiskerfið að tefla. Hvernig bregðast við Torfar í Klofa nútímans?

Menn spyrja hver annan á götum úti: Hefur verið skipt um ríkisstjórn í landinu? Hafa þeir Björn og Eðvarð tekið við í krafti ofbeldis? Því miður er ekki unnt að svara þessum spurningum neitandi.

Stendur þjóðin raunverulega varnarlaus gegn ræningjaflokkum? Þessari spurningu svarar þjóðin sjálf á næstu dögum.

Jónas Kristjánsson

Vísir