Lengi getur lítið minnkað

Punktar

Megrun Framsóknar gengur bærilega. Stöðugur straumur þekktra flokksmanna er á útleið. Formaður framsóknarkvenna gekk út í gær. Kristbjörg Þórisdóttir hafði fengið nóg af yfirgangi og einleik Kögunar-barnsins í stóli formanns. Áður hafði Sigurjón Kærnested, formaður ungra framsóknarmanna, sagt af sér. Sömuleiðis Andrés Pétursson, Gísli Tryggvason, G. Valdimar Valdemarsson og Gestur Guðjónsson. Að ógleymdum Guðmundi Steingrímssyni þingmanni. Eftir sitja Sigmundur frá Kögun, Gunnar Bragi og Vigdís Hauksdóttir, sem reyna að losa sig við Eygló Harðardóttur og Siv Friðleifs. Lengi getur lítið minnkað.