Lélegur textahöfundur

Punktar

Brynjar Níelsson lagatæknir er lélegur penni. Fellur í ýmsar gryfjur, sem fagmenn í texta eru varaðir við. Gagnrýnir þekktan hagfræðing, Anne Sibert, og kallar hana “kona nokkur”. Við að reyna að niðurlægja annan niðurlægir Brynjar sjálfan sig. Hneykslast á, að “útlendingur” tjái sig um íslenzk mál, annað orðalag af sama meiði. Fyrst var það kvennahatur og síðan er það útlendingahatur. “Mér skilst, að konan sé prófessor í hagfræði”, segir Brynjar. Reynir að draga í efa, að svo sé. Allt er það minni máttar orðalag dusilmennis, sem árangurslaust reynir að upphefja sig á kostnað annarra.