Lélegt upplýsingafrumvarp

Punktar

Frumvarp embættismanna um ný upplýsingalög gengur of skammt. Gömlu lögin voru afleit og lokuðu upplýsingaleiðum. Mín reynsla af þeim lögum er allt önnur en sú, sem embættismannanefndin lýsir. Ég túlka það svo, að þeir viti ekki, um hvað þeir eru að tala. Litlar upplýsingar fengust samkvæmt gömlu lögunum og nýja frumvarpið dregur dám af þeim gömlu. Leggið þetta nýja frumvarp bara til hliðar. Betra er, að stjórnlagaþingið setji ákvæði í stjórnarskrána um gegnsæi í stjórnsýslu og fjármálum. Orðalag verði svo skýrt, að lagatæknar geti ekki snúið út úr því með hamlandi upplýsingalögum.