Leiðrétta hvaða misskilning?

Punktar

Við sjáum sömu hugsun og í útrásinni, að almannatengsl séu veruleikanum merkari. Menn vilja almannatengsl í útlöndum vegna IceSave. Til að leiðrétta misskilning, segja sumir. Það er bara engan misskilning að leiðrétta. Fólki erlendis er kunnugt um, að meirihluti þjóðarinnar vill ekki borga. Samanber kórinn á þingi: “Við borgum ekki skuldir einkafyrirtækis.” Þekkingu erlendis verður ekki breytt með almannatengslum. Stjórnarandstaðan ærði þjóðina sem ærði forsetann, sem olli okkur stórvandræðum. Engin almannatengsl af hálfu ríkisstjórnar megna að breyta ferlinu, sem hófst hjá stjórnarandstöðunni.